Íslandsmeistarnir í frábærri stöðu - Fyrsta liðið til að halda hreinu gegn KR - DV
Víkingur er með sex stiga forskot á toppi Bestu deildar karla eftir sigur á KR í 11. umferð í kvöld. Frammistaða Víkings var fagmannleg og komst liðið yfir með marki Helga Guðjónssonar undir lok fyrri hálfleiks. Valdimar Þór Ingimundarson rúllaði svo boltanum í netið eftir sendingu Daníels Hafsteinssonar í kjölfar mistaka KR-inga á 73. mínútu. …