Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent - Vísir
Gjald fyrir akstursþjónustu eldra fólks í Kópavogi gæti hækkað úr 673 krónum í 1.772 krónur á ferð samkvæmt tillögu sem velferðar- og mannréttindaráð bæjarins hefur samþykkt fyrir sitt leyti. Hækkunin næmi rúmlega 163 prósentum hjá þeim sem falla í hærri tekjuflokk þjónustunnar.