„Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ - Vísir
„Mig langaði ekkert til að vera skvísa fyrr en töluvert seinna. Ég rakaði líka af mér allt hár þegar ég var tólf ára bara af því ég gat það,“ segir hin 21 árs gamla Aðalfríður Mekkín Samúels, sem er oftast kölluð Mekkín. Hún er mikill tískuunnandi, er óhrædd við að skera sig úr og hefur sannarlega gaman að því að klæða sig upp en hún ræddi við blaðamann um stílinn sinn og fataskáp.