Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ - Vísir
Halldór Áskell Stefánsson gerði sér lítið fyrir og labbaði heim úr vinnunni í gær. Það væri líklega ekki í frásögur færandi nema vegna þess að Halldór vinnur í Reykjavík en býr á Selfossi. Ferðalagið tók rúmar þrettán klukkustundir, reyndist mikil áskorun og á tímabili þurfti hann að minna sig á að setja annan fótinn fram fyrir hinn.