Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun - Vísir
Viðgerðir á mótor Herjólfs IV Vestmannaeyjaferju eru á áætlun og gert ráð fyrir að mótorinn verði sendur til Íslands með skipi frá Hollandi þann 13. júlí. Mótorinn verði settur í ferjuna þegar hann berst til landsins og ferjan Baldur í kjölfarið snúa aftur til siglinga á Breiðafirði þegar uppsetningu mótorsins er lokið. Þetta segir í tilkynningu Vegagerðarinnar.