„Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ - Vísir
Rapparinn Gaukur Grétuson, betur þekktur sem GKR, er snúinn aftur til landsins eftir fimm ár í Noregi. Blankheit, iðandi íslensk tónlistarsena og frábær vinna með góðum vini drógu Gauk aftur til landsins og heldur hann tíu ára afmælistónleika plötunnar GKR í Iðnó þann 10. október næstkomandi. Sjálfur á hann von á því að margir séu búnir að gleyma honum en lofar trylltum tónleikum.