Verðmæti Blikastaðalandsins „ótrúlega hátt hlutfall“ af markaðsvirði Arion - Innherji
Forstjóri Stoða furðar sig á því hversu lítinn gaum fjárfestar virðast gefa fyrir þau „gríðarlegu verðmæti“ sem felast í Blikastaðalandinu fyrir Arion en fjárfestingafélagið er langsamlega stærsti einkafjárfestirinn í hluthafahópi bankans. Hann segir verðlækkanir og óróa á innlendum mörkuðum á árinu „nær eingöngu“ skýrast af neikvæðum fréttum af Marel og Alvotech, tveimur verðmætustu félögunum í Kauphöllinni.