Tilmæli til borgarstjórnar, fagþekking - Vísir
Ég óska borgarstjórn velfarnaðar í hennar störfum. Hún er líkleg til að vinna vel. Mér þykja málefnaáherslur meirihlutans að langflestu leyti prýðilegar og þar er byggt á góðum grunni. Mikilvægt er að fagmennska sé í fyrirrúmi við stjórn borgarinnar en um leið er ekki hægt að gera kröfu um að borgarfulltrúar hafi vit á öllum sköpuðum hlutum. Því ætti borgarstjórn að leita til bestu sérfræðinga á hverju sviði. Það er trygging fyrir árangri.