Hreyfingin stærri en einstakar persónur - Vísir
Forsætisráðherra segir sameinaða verkalýðshreyfingu miklu stærri en stök félög, einn flokkur og hvað þá einstakir forystumenn í stjórnmálum eða stéttarfélögum. Hún hvatti til þess að byggt yrði upp meira traust í samfélaginu og innan ASÍ. Deilur milli forystumanna í verkalýðshreyfingunni lita 47. þing ASÍ sem var sett í morgun.