Mikil tímamót fyrir Víkinga, byrja á bílastæðum - Vísir
Framkvæmdastjóri knattspyrnufélagsins Víkings fagnar samningi við borgarráð um að félagið fái alls um tíu þúsund fermetra lóð sem Gróðrastöðin Mörk hefur haft afnot af í Fossvogsdal. Þá feli samningurinn í sér að borgin muni sjá um sjá um framtíðaruppbyggingu íþróttamannvirkja í Safamýri og við Traðarland. Fyrsta verkefnið verði bílastæði í Fossfogsdal.