Velferð er ekki tilviljun – hún er pólitískt val - Vísir
Sveitarfélag sem tekur velferð alvarlega tryggir ekki aðeins þjónustu heldur öryggi, sjálfstæði og lífsgæði á öllum lífsskeiðum. Á Seltjarnarnesi á að vera gott að eldast, gott að ala upp börn og gott að lifa sjálfstæðu lífi á öllum skeiðum. Það gerist ekki af sjálfu sér heldur með skýrri sýn, samþættri þjónustu og raunverulegum vilja til að setja velferð fólks í forgang.