Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi - Vísir
Allar björgunarsveitir frá höfuðborgarsvæðinu og austur á Höfn voru kallaðar út til að leita erlends ferðamanns sem nú hefur fundist heill á húfi. Hann hafði farið af stað í göngu í nótt ofan við Foss á Síðu á Suðurlandi en skilaði sér ekki til baka.