Íslensk listakona sló í gegn í Miami - Vísir
„Það var ótrúleg upplifun að fá tækifæri til að sýna verkin mín í borg sem iðar af lífi og list þessa daga. Miami Art Week er ein stærsta listavika ársins og það er sérstök tilfinning að fá að vera hluti af henni, segir listakonan og rithöfundurinn Sandra Halldóra Andersen, sem hefur verið búsett í Bandaríkjunum í tæp tólf ár og er að gera öfluga hluti í sinni listsköpun.