Ísland - Aserbaídsjan | Þriggja stiga met í þægilegum sigri - Vísir
Ísland mætti Aserbaídsjan í forkeppni EuroBasket 2029 í Ólafssal að Ásvöllum. Byrjun íslenska liðsins var örlítið stirð en eftir 18-0 sprett í lok fyrsta leikhluta var aldrei spurning hvoru megin sigurinn lenti. Thelma Dís Ágústsdóttir fór á kostum og setti met í þriggja stiga körfum en hún endaði í 13 þristum og með 41 stig. Leikurinn endaði 129-41.