Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki - Vísir
Helga Rún Jóhannsdóttir þurfti að taka málin í sínar eigin hendur þegar seinkun á afhendingu vörugáms leiddi til þess að hópur erlendra verkamanna gat ekki sett upp padelvöllinn hennar á Reyðarfirði. Hann verður sá fyrsti á Íslandi utan höfuðborgarsvæðisins. Helga starfaði áður erlendis fyrir eitt stærsta fjárfestingarfyrirtæki heims en vill núna sinna verkefnum sem þjóna betur samfélaginu.