Klóakið í fjölbýlishúsinu bjó yfir skelfilegu leyndarmáli – Upp komst um hræðilegt mál | DV - Frjáls og óháður miðill
Dennis Nilsen fæddist þann 23. nóvember 1945 í Fraserburgh í Skotlandi. Faðir hans var norskur en móðir hans skosk. Hann hefur verið nefndur „The Muswell Hill Murderer” en hann var einn afkastamesti raðmorðingi Bretlandseyja. Vitað er að hann myrti 12 karla og reyndi að myrða 7 til viðbótar. Morðin voru hrottaleg en að þeim loknum tók við sérkennileg athöfn.Af þeim raðmorðingjum, sem vitað er um á Bretlandseyjum, var aðeins Harold Shipman, doktor dauði, afkastameiri en Dennis.