Skildi börnin sín eftir – Heimilið var svo viðbjóðslegt að rannsóknarmenn þurftu að klæðast hlífðarbúningum | DV - Frjáls og óháður miðill
Móðir sem játaði á sig bótasvik í Oakland-sýslu í Michigan, BNA, á síðasta ári og var dæmd í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi, hefur nú verið ákærð fyrir tengdan en öllu alvarlegri glæp: svívirðilega vanrækslu á börnunum sínum. Konan heitir Kelli Bryant og er 35 ára. Í febrúar árið 2025 hafði leigusalinn hennar samband við lögreglu og greindi frá því að hún hefði ekki greitt leigu frá því í október 2024. Óskaði hann eftir velferðarkönnun á heimilinu.