Lögreglumönnunum brá mikið þegar þeir opnuðu kassann – „Eitt það klikkaðasta sem ég hef upplifað“ | DV - Frjáls og óháður miðill
Vikum saman hafði Beverly McGowan, 34 ára, leitað að meðleigjanda en hún bjó í Pompano Beach í Flórída. Hún starfaði í banka og launin voru ekki neitt til að hrópa húrra yfir. Hún þurfti því að finna sér meðleigjanda til að létta aðeins á greiðslubyrðinni. Kvöld eitt hringdi kona, sem kynnti sig sem Alice, og sagðist hafa séð auglýsinguna frá henni. „Ég vil gjarnan flytja inn,“ sagði hún með breskum hreim. Hún sagðist vera frá Bretlandi og starfaði hjá IBM. Hún sagðist vera áreiðanlegur leigjandi og stæði skil á sínum greiðslum.