Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB - Vísir
Deginum ljósara er samkvæmt gögnum Evrópusambandsins að innganga Íslands í sambandið kallaði á það að auka þyrfti verulega umfang stjórnsýslunnar hér á landi. Ég ritaði grein á Vísi um síðustu helgi þar sem ég vitnaði í því sambandi í skjalið „Commission decision of 08.04.2011 on a Multi-annual Indicative Planning Document (MIPD) 2011-2013 for Iceland“ frá 2011 frá því umsóknarferlið var í gangi síðast þar sem fram kemur skýrt að sambandið teldi stjórnsýsluna of litla til þess að ráða við þær skuldbindingar sem fylgdu veru innan þess. Um var að ræða svar við grein Halldórs Jörgens Olesen á sama miðli þar sem hann vildi meina að innganga í Evrópusambandið hefði alls ekki slíkt í för með sér. Fyrr í vikunni kom svargrein frá honum þar sem hann vildi meina að skjalið samræmdist þvert á móti hans málflutningi. Fátt er þó fjær sanni.