„Þurfum að læra að stýra spennustiginu á milli verkefna“ - Vísir
„Þetta var ekki góður leikur hjá okkur, mikið af tæknifeilum. Við vorum bara ekki líkir sjálfum okkur. Við vorum að taka góð hlaup bak við vörnina og þá var sendingin kannski of löng, þannig einfaldar sendingar voru að klikka.“ sagði Sölvi Geir Ottesen Jónsson þjálfari Víkings eftir fyrsta tapleik liðsins í Bestu deildinni í sumar gegn Þór á Akureyri í dag, 2-1.