Café Rosenberg endurvakið: „Okkur langar bara til að gera þetta allt aftur“ - Vísir
Café Rosenberg opnar dyr sínar á ný von bráðar en nú á horni Naustanna og Tryggvagötu þar sem Gamla Amsterdam, Ölstofan Fredriksen og Bord voru áður til húsa. Áfram verður lögð áhersla á persónulega þjónustu, lifandi tónlistarflutning og góðar stundir en nú þegar hefur fjöldi tónlistaratriða verið bókaður út haustið.