Niðurstöður fyrstu borana í Nanoq gefa til kynna „hágæða-gullsvæði“ - Innherji
Niðurstöður úr rannsóknarborunum Amaroq Minerals í Nanoq á Suður-Grænland sýndu fram á háan styrkleika gulls á svæðinu og undirstrikar mikla möguleika leyfisins, að sögn forstjóra auðlindafyrirtækisins. Frekari boranir eru áformaðar á næsta ári en fyrstu niðurstöður gefa vísbendingar um að hægt sé að finna gull í magni sem má telja í milljónum únsa.