Misskilningur um samræmingu heilbrigðiseftirlits - Vísir
Í gær skrifuðu Benedikt S. Benediktsson, Jóhannes Þór Skúlason og Sigurður Hannesson grein um fyrirhugaðar breytingar á heilbrigðiseftirliti á Íslandi fyrir hönd Samtaka verslunar og þjónustu, Samtaka ferðaþjónustunnar og Samtaka iðnaðarins. Í grein sinni fullyrða þeir að ósamræmi í heilbrigðiseftirliti sé of mikið og á þeim grundvelli lýsa þeir yfir stuðningi við umdeilt frumvarp umhverfisráðherra.