Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri - Vísir
Maðurinn sem lést í hákarlaárás undan ströndum Ástralíu í vikunni hefur verið nafngreindur og nú hefur leyfi fyrir því að veiða og drepa hvítháfinn sem banaði honum verið gefið út. Enn er leitað að líki mannsins en málið hefur vakið mikla athygli enda umdeilt að gefa út svokallaða „catch-and-kill“ skipun þar sem hvítháfurinn er friðuð tegund.