Bríet treður upp á stórleiknum - Vísir
Poppstjarnan Bríet mun koma fram í hálfleik á leik Þróttar og Breiðabliks í sextán liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna síðar í dag. Ásamt hálfleikssýningunni mun Þróttur spila í og selja sérstakar treyjur úr smiðju söngkonunnar.