Skörp kröfulækkun ríkisbréfa með milljarða innflæði frá erlendum sjóðum - Innherji
Markaðsvextir óverðtryggðra ríkisskuldabréfa lækkuðu skarpt í dag í umtalsverðri veltu sem er meðal annars rakin til milljarða króna fjármagnsinnflæðis frá erlendum skuldabréfasjóðum. Eftir að hafa veikst nokkuð á undanförnum vikum styrktist gengi krónunnar því á nýjan leik.