Opnuðu Arnarnesveg að hluta - Vísir
Opnað var fyrir umferð um hluta nýja Arnarnesvegs klukkan 14:00. Svæðið er þó enn vinnusvæði enda standa yfir framkvæmdir við nýtt hringtorg við mót Arnarnesvegar og Rjúpnavegar og við nærliggjandi göngu- og hjólastíga.