Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ - Vísir
Oddvitar meirihlutans í Mosfellsbæ, Viðreisnar, Framsóknar og Samfylkingar, hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir fordæma harðlega kosningamyndband Miðflokksins í Mosfellsbæ. Þar má sjá ungan mann ganga út af kjörstað eftir að hafa kosið Miðflokkinn og kýla mann sem kallaður er „libbi“ áður en hann sest upp í bíl. Oddviti Miðflokksins sakar andstæðinga sína um ritskoðun en myndbandið er horfið af síðu flokksins.