Þögn er líka skilaboð - Vísir
Í nýrri könnun Maskínu fyrir Blaðamannafélag Íslands (BÍ) sem m.a. Viðskiptablaðið, Vísirog Mbl hafa greint frá, kemur fram að 27% íslenskra blaðamanna hafa einhvern tímann ákveðið að fjalla ekki um mál af ótta við viðbrögðin sem umfjöllunin kann að valda. Meðal þeirra sem hafa starfað í innan við fimm ár er þetta hlutfall nær 42%. Þá segjast 75% blaðmanna hafa orðið fyrir áreitni eða fjandsemi vegna fréttaflutnings.