Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa - Vísir
Barbie var aðsóknarmesta mynd ársins 2023, tilnefnd til fjölmargra verðlauna og olli hálfgerðu Barbie-æði. Fljótlega eftir frumsýninguna hófust viðræður um gerð framhaldsmyndar. Nú þremur árum síðar er Barbie 2 í lausu lofti vegna hárra launakrafa leikstjórans Gretu Gerwig, handritshöfundarins Noah Baumbach og stjarnanna Margot Robbie og Ryan Gosling.