Uppgjörið: Ármann-Stjarnan 95-116 | Fjórði sigur Stjörnumanna í röð - Vísir
Stjörnumenn héldu áfram sigurgöngu sinni í Bónusdeild karla í körfubolta með 21 stigs sigri á Ármanni, 116-95, í Laugardalshöllinni í kvöld. Ármenningar hafa tapað sjö fyrstu leikjum sínum í vetur en Stjörnumenn hafa unnið fjóra leiki í röð eftir að hafa verið stigalausir eftir þrjá fyrstu leikina.