„Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ - Vísir
Sjúkraliðafélag Íslands hefur hrundið af stað átaki til að vekja athygli á starfi sjúkraliða og hvetja fleiri til að sækja í námið. Að sögn Söndru B. Franks, formanns félagsins, er staðan alvarleg en jafnframt full af tækifærum fyrir nýtt fólk.