Nei fyrir komandi kynslóðir - Vísir
Í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar næstkomandi laugardag hefur rignt yfir almenning auglýsingaherferð Já til að sjá sem byggir nær eingöngu á gylliboðum um að lægri vextir, ódýrari matur og minni verðbólga verði eins og fyrir töfra raunin hér á landi við það eitt að ganga í Evrópusambandið. Breytir þar engu þó að þessar mýtur hafi margsinnis verið afsannaðar í bæði ræðu og riti á opinberum vettvangi síðustu vikur.