„Frábær byrjun“ að Vilhjálmur líti í eigin barm - Vísir
Formaður Neytendasamtakanna segist sammála formanni Starfsgreinasambandsins um að meira aðhald þurfi með fyrirtækjum landsins sem skili ekki gengislækkunum út í verðlag. Hann eigi þó að líta í eigin barm enda skipi hann í stjórnir lífeyrissjóða, stærstu eigenda íslenskra fyrirtækja.