Marius látinn laus - Vísir
Marius Borg Høiby hefur farið fram á og fengið samþykkt af héraðsdómi Óslóarborgar að hann verði látinn laus til að vera með móður sinni, Mette-Marit krónprinsessu Noregs. Saksóknari kærði ákvörðunina svo Marius situr áfram inni um tíma. Réttarhöld yfir honum hafa staðið frá í febrúar og er hann ákærður fyrir fjölda ofbeldis- og kynferðisbrota.