Vilja formlega afsökun frá Selenskí - Vísir
Ráðamenn í Suður-Kóreu hafa farið fram á að kollegar þeirra í Úkraínu biðji þá formlega afsökunar. Er það eftir að Vólódímír Selenskí sagði frá því að norðurkóreskir hermenn sem voru handsamaðir í Kúrsk í Rússlandi hefðu viljað fara til Suður-Kóreu og voru sendir þangað. Lee Jae Myung, forseti Suður-Kóreu, segir að með því að segja frá þessu hafi Selenskí brotið gegn samkomulagi milli ríkjanna.