Starmer opinberar að hann hafi þurft að skerast í leikinn fyrir gærdaginn | DV - Frjáls og óháður miðill
Forsætisráðherra Bretlands, Keir Starmer, og utanríkisráðherrann Yvette Cooper komu að því að þrýsta á FIFA að færa ekki leik Englands og Mexíkó á HM síðastliðna nótt fram um sex klukkustundir.Samkvæmt BBC hafði FIFA íhugað að flýta leiknum vegna spár um þrumuveður í Mexíkóborg. Bresk stjórnvöld og enska knattspyrnusambandið mótmæltu hins vegar breytingunni, meðal annars til að um 3 þúsund enskir stuðningsmenn misstu ekki af leiknum.„Við þurftum að berjast með enska knattspyrnusambandinu til að halda leiknum á upphaflegum tíma,“ sagði Starmer.