Íslenskir arkitektar heiðraðir af Svíakonungi - Vísir
Sigríður Sigþórsdóttir, Hrólfur Karl Cela, Marcos Zotes og Perla Dís Kristinsdóttir, arkitektar og eigendur Basalt arkitekta, hlutu í vikunni heiðursorðu Eugens prins árið 2026 fyrir framúrskarandi framlag á sviði lista. Karl XVI Gústaf Svíakonungur afhenti þeim orðurnar við hátíðlega athöfn í konungshöllinni í Stokkhólmi 17. nóvember. Stofan hefur hannað lón, sundlaugar og baðstaði víða um land.