Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn - Vísir
Donald Trump spurði Xi Jinping hvort hann hefði áhuga á því að kaupa bandarísk vopn og hergögn. Þessari spurningu varpaði Trump fram á fundi forsetanna í Washington DC í síðustu viku og var markmiðið að réttlæta yfirstandandi vopnasölu til Taívan, sem Kínverjar gera tilkall til.