Systir Ronaldo varpar sprengju um bróður sinn | DV - Frjáls og óháður miðill
Systir Cristiano Ronaldo, Katia Aveiro, fullyrðir að HM sem nú stendur verði síðasta stórmót bróður síns.Þetta sagði hún nú skömmu fyrir leik Portúgal og Króatíu í 32-liða úrslitum í kvöld, þar sem Ronaldo er í byrjunarliðinu.Ronaldo er 41 árs og mun hann samkvæmt þessu ekki leika með portúgalska landsliðinu á EM 2028. Hann hefur leikið með landsliðinu síðan 2003 og er á sínu tólfta stórmóti.Alls hefur Ronaldo spilað 232 landsleiki og skorað í þeim 145 mörk. Stærsta afrek hans var án efa að vinna Evrópumeistaratitilinn 2016.