Baldur: „Booker gat ekki haldið kjafti“ - Vísir
Baldur Þór Ragnarsson þurfti að ljúka leiknum gegn Grindavík inn í klefa þar sem honum var vikið út úr húsi fyrir tvær tæknivillur. Hans menn náðu að vinna leikinn með naumindum í hörkuleik 104-97 og fara inn í landsleikjahléið með sex sigra og eitt tap.