ÍA-Stjarnan 5-1: Draumabyrjun ÍA í martraðarheimkomu Jóns Þórs - Vísir
Skagamenn skoruðu þrjú mörk á fyrstu 26 mínútunum og unnu sannfærandi 5-1 sigur á Stjörnumönnum í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld þegar Jón Þór Hauksson, fyrrverandi þjálfari Skagamanna, mætti með Garðabæjarliðið á sinn gamla heimavöll.