Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd - Vísir
Íslenska U21 árs landslið karla tryggði sér sæti í umspili um sæti á Evrópumótinu eftir sannfærandi 0-2 sigur á Færeyjum ytra í lokaumferð undankeppninnar í kvöld. Íslenska liðið þurfti nauðsynlega á sigri að halda og treysta um leið á að Sviss myndi ekki vinna Frakkland. Strákarnir kláruðu sitt verkefni af miklu öryggi og Frakkar réttu risastóra hjálparhönd þegar þeir völtuðu yfir Svisslendinga. Umspilssæti Íslendinga er því staðreynd.