Umfjöllun: Ísland – Eistland 1-1 Svekkjandi jafntefli á Laugardalsvelli - Vísir
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta gerði 1-1 jafntefli við Eistland á Laugardalsvelli í dag, í fyrsta leik sínum í riðlakeppni Þjóðadeildarinnar. Andri Lucas Guðjohnsen kom Íslandi yfir rétt fyrir hálfleik, en Maksim Paskotsi jafnaði fyrir gestina í þeim síðari.