„Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ - Vísir
„Tilfinningin er frábær. Liðssigur í dag og við lögðum mikla vinnu í þennan leik og bara gott að uppskera,“ sagði kampakát Sólveig Lára Kjærnested, leikmaður ÍR, eftir tveggja marka sigur á HK í Kórnum. Lokatölur 18-20 þar sem ÍR var með yfirhöndina í leiknum.