Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi - Vísir
„Eiginkona mín hefur sannarlega bjargað mér síðan ég kynntist henni en það var á sama tíma og móðir mín var að deyja úr krabbameini,“ segir listamaðurinn Anders Vanga sem rekur Reykjavík Glass. Þessi einlægi og skapandi maður er viðmælandi í nýjasta þætti af Litlu hlutirnir með Kára Sverris þar sem hann ræður um erfiðan missi, að veikjast sjálfur af krabbameini, flutninga til Íslands, sköpunargleðina, fjölskylduna og margt fleira.