Hagræðing Icelandair sögð farin að minna á viðsnúninginn hjá Finnair - Innherji
Þrátt fyrir lítillega lækkun á verðmati Icelandair eru hlutabréf flugfélagsins sögð verulega undirverðlögð. Greinendur segja síðasta uppgjör félagsins betra en við fyrstu sýn og að markviss hagræðing, bætt tekjustýring og endurnýjun flugflotans geti skilað kröftugum viðsnúningi í rekstri á næstu árum.