Langbesta lið landsins fann leið til að vinna | DV - Frjáls og óháður miðill
Víkingur jók forskot sitt á toppi Bestu deildar karla enn frekar með sigri á KA í kvöld.Víkingur byrjaði leikinn af krafti og Aron Elís Þrándarson kom þeim yfir með skallamarki snemma leiks.Hinn ólseigi Hallgrímur Mar Steingrímsson svaraði hins vegar með tveimur flottum mörkum og gestirnir frá Akureyri leiddu 1-2 í hálfleik.Útlitið var gott fyrir KA lengi vel en Aron Elís var aftur á ferðinni með mark á 82. mínútu og í uppbótartíma fékk Víkingur vítaspyrnu. Gylfi Þór Sigurðsson fór á punktinn og skoraði af öryggi.