Britney á stóra skjáinn - Vísir
Ævisöguleg kvikmynd um poppstjörnuna Britney Spears færist nær því að verða að veruleika. Aðlögunin á sjálfsævisögu Spears að stóra skjánum hefur verið í lausu lofti síðan 2024 en nú herma fregnir að búið sé að ráða handritshöfundinn Elizabeth Meriwether í verkið. Hún bætist í framleiðsluhópinn með leikstjóranum Jon M. Chu og framleiðandanum Marc Platt.