Haltu bara í þér - Vísir
„Er nóg fyrir flesta að koma einu sinni í meðferð?“ spurði ég galvösk þar sem yfirlæknirinn leiddi mig um húsakynni Vogs áður en ég tók þar til starfa. Lítið vissi ég um fáfræði mína á fíknsjúkdómum, en mér til varnar man ég ekki til þess að hafa fengið kennslu um sjúkdóminn á námsárunum í læknisfræði.